<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, janúar 25, 2005

Seint skrifa sumir en skrifa þó.

Það er nú bara orðið frekar langt síðan maður skrifaði síðast. Sökum kvartanna ákvað ég að gera eitthvað í málunum.

Ég hef haft það obbolega gott á Íslandinu góða. Á virkum dögum les ég í skólabókunum mínum og þess á milli hitti ég fólk og geri eitthvað íslenskt. Það er afskaplega ljúft að geta skellt sér í sund hvenær sem maður vill eða skroppið niðrá Nonnabita og fengið sér ljúffenga samloku.

Það eru allir í kringum mig annað hvort að eignast krakka eða íbúð... já eða bíl. Ég er ekki frá því að mig langi að flytja aftur heim og kaupa mér íbúð í Grafarholtinu. En það gengur víst ekki. Maður verður víst að klára þetta nám sitt. Æi vitiði... ég hreinlega nenni ekki að blogga þegar ég er á klakanum. Ég geri sterklega ráð fyrir að halda því áfram þegar ég fer aftur út en þangað til verðiði bara að hringja í mig og fá fréttir good people.

Bæjó í bili.



This page is powered by Blogger. Isn't yours?